
Sumarmál
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Rabbabari hefur svo sannarlega komið við sögu hjá okkur í sumar í Sumarmálum og það hefur komið í ljós að möguleikar rabbabarans eru óteljandi. Í dag tókum við spjalli tvo víngerðarmenn fyrir austan fjall sem eru til dæmis að búa til Rabbabarafreyðivín og rækta rabbabara í stórum stíl. Þetta eru þeir Þórólfur Sigurðsson frístundabóndi og Sveinn Garðarsson vínþjónn.
Við fengum svo áttundu bæjarperluna senda frá Hinriki Wöhler í dag og í þetta sinn var perlan Eyjafjarðarsveit. Hann hitti Maríu Pálsdóttur á Kristnesi, þar sem hún stýrir Hælinu, setur um sögu berklanna, og svo fór hann og hitti Fjólu Kim Björnsdóttur sem á ásamt fleirum kúabú og ísbúð í Holtseli.
Fugl dagsins verður svo auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Átján tíma á dag / Eyjólfur Kristjánsson og Björgvin Halldórsson (Pim Koopman, texti Aðalsteinn Ásberg)
Æskuást / Erla Stefánsdóttir (Grétar Ingvarsson, texti Rafn Sveinsson)
Days of wine and roses / Ella Fitzgerald (Henry Mancini & Johnny Mercer)
Kon-Tiki / The Shadows (M.Carr & Michael Carr)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.