• 00:06:48Fugl dagsins
  • 00:17:38Tómas Grétar Gunnarss. - koma farfugla
  • 00:31:38Jeppaþjóðin #4 - Freyr Þórss. breyttir jeppar

Sumarmál

Koma farfugla til landsins, Jeppaþjóðin og breyttir jeppar og fuglinn

Fugl dagsins err á sínum stað hjá okkur í Sumarmálum í dag en við látum það ekki nægja þar sem við ræddum komu farfugla til landsins á vorin við Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðumann Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi. Rannsóknir Tómasar og föður hans, Gunnars Tómassonar, leiða í ljós þótt vor geti verið afar ólík, bæði milli ára og jafnvel innan sama árs, með hretum eða hlýindum á víxl, sýna langtímamælingar engu síður loftslag fer hlýnandi, sem veldur því farfuglar eru fyrr á ferðinni en áður.

Við höfum fengið á miðvikudögum í sumar innslög sem Elísabet Thea Kristjánsdóttir hefur unnið fyrir okkur sem kallast Jeppaþjóðin og í dag var komið því fjórða í röðinni. Í því kafar Elísabet í tæknilegar hliðar jeppabreytinga og íslensk einkenni þess aka í snjó. Hún ræddi við Frey Þórsson, sérfræðing á sviðinu, um íslenska fyrirtækið Arctic Trucks og þróun sérútbúinna ökutækja fyrir fjölbreytt not hérlendis en ekki síst erlendis, þar sem íslensk nýsköpun er nýtt við krefjandi aðstæður á afskekktum svæðum víða um heim, líkt og á suðurskautinu og Dubai.

Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.

Tónlist í þættinum í dag:

Ljúflingshóll / Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar (Jóns Múla Árnason, texti Jónas Árnason)

I'm on Fire / Bruce Springsteen (Bruce Springsteen)

Slow Dancing With The Moon / Dolly Parton (Mac Davis)

Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir

Birt

22. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,