• 00:10:11Fugl dagsins
  • 00:21:03Boðið upp á Qigong í RVK - Þorvaldur og Eggert
  • 00:39:11Minjasafnið á Akureyri - Haraldur Þór Egilsson

Sumarmál

Qigong lífsorkuæfingar í borginni, Minjasafnið á Akureyri og fugl dagsins

Í dag fór fyrsti þáttur Sumarmála í loftið þetta sumarið.

Fugl dagsins verður auðvitað á sínum stað í sumar og við verðum með fasta liði sem hlustendur kannast við frá því í Sumarmálum síðustu ár. Páll Ásgeir Ásgeirsson útivistargúrú talar um gildi þess vera úti í náttúrunni og bendir okkur á áhugaverða staði fyrir útiveru. Hinrik Wöhler verður aftur með bæjarperlur þar sem hann heimsækir bæjarfélög á landinu og spjallar við fólk. Elísabet Thea Kristjánsdóttir ætlar bjóða okkur upp á það sem við köllum Jeppar á fjalli, um íslenska jeppamenningu, safn vikunnar verður á sínum stað og við heyrum ferðasögur svo eitthvað nefnt.

Í þættinum í dag sögðum við frá áhugaverðri dagskrá í borginni sem verður borgarbúum endurgjaldslaus en markmiðið er styðja við einstaklinga og fjölskyldur til aukinnar lífsorku, leik og gleði. Þau sem koma þessu hafa margvíslega reynslu, m.a. kennslu tengda leiklist, Qigong lífsorkuæfingum, hugleiðslu og öðrum aðferðum sem losa um spennu og auka styrk. Þorvaldur Ingi Jónsson og Eggert Kaaber komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá þessu.

Safn vikunnar hefur verið hluti af Sumarmálum undanfarin ár og verður áfram í sumar á mánudögum. Það er Minjasafnið á Akureyri sem reiðr á vaðið í dag. Við heyrðum í Haraldi Þór Egilssyni safnstjóra í beinni útsendingu norðan. Þar á er sýning um hernámsárin á Akureyri og Eyjafirði og sýning af elstu kortum af Íslandi sem Haraldur sagði okkur meira af í þættinum.

Tónlistin í þættinum:

Fuglinn þinn / Stefán Hilmarsson (Hrafnhildur Magnea Ingólfsdóttir (Raven) og Stefán Hilmarsson)

Missisippi / Cactus Blossoms (Torey)

Vonarströnd / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson)

Toss the feathers / Slitnir strengir (Höf ókunnur)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt

29. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,