
Sumarmál
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Brynja Baldursdóttir myndlistarmaður hefur verið búsett á Siglufirði í 30 ár og er ein þeirra sem tekið hefur virkan þátt í því að endurvekja og ýta undir öflugt listalíf í bænum. Helga Arnardóttir hitti Brynju á Siglufirði og ræddi við hana um listina, náttúruna og töfrana sem finnast á stað sem þessum.
Hulda Geirsdóttir hringi svo vestur í Örlygshöfn og heyrði í Ingu Hlín Valdimarsdóttur forstöðumanni Minjasafns Egils Ólafssonar á Hnjóti sem sagði frá fjölbreyttri starfsemi safnins. Fugl dagsins var svo auðvitað á sínum stað.
Tónlist:
Sváfnir Sig og drengirnir á upptökuheimilinu - Malbiksvísur.
Salka Sól - Tímaglas.
Dawn og Tony Orlando - Tie a yellow ribbon.
Cliff Richard og Shadows - Summer holiday.

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.