Mismunandi sjónarmið og málamiðlanir eru eðlileg í samstarfi þriggja ólíkra flokka í ríkisstjórn segir varaformaður Framsóknarflokksins. Ríkisstjórnin hafi sterkt umboð.
Donald Trump kveðst aldrei hafa fundið fyrir eins miklum stuðningi og eftir að tilkynnt var um ákæru á hendur honum í gær.
Leiðsögumaður sem dvaldi í Landmannalaugum um helgina segir umgengni á salernum og búningaaðstöðu með því versta sem hann hafi séð. Staðahaldarar harma þá upplifun.
Arnarstofninn á Íslandi hefur rétt vel úr kútnum en á tímabili var hann í útrýmingarhættu. Varpið í ár er með allra mesta móti og rúmlega níutíu pör eru nú á Íslandi.
Þjóðverjar - ein mesta bjórdrykkuþjóð í heimi - drekka nú meira af áfengislausum bjór en nokkru sinni fyrr. Framleiðsla á slíkum bjór hefur næstum tvöfaldast á síðustu tíu árum en neysla á venjulegum bjór hefur dregist saman.