Ísraelska þingið hefur samþykkt fyrsta hluta umdeildra breytinga á dómskerfi landsins, sem dregur úr völdum hæstaréttar. Frumvarpinu hefur verið mótmælt allar helgar frá því það leit fyrst dagsins ljós fyrir um hálfu ári.
Yfirfullir grenndargámar hafa gert Reykvíkingum lífið leitt síðustu vikur. Millibilsástand vegna breytinga á sorphirðu, segir forstjóri endurvinnslufyrirtækis.
Nýrri rannsókn er ætlað að varpa ljósi á háttalag og uppeldisstöðvar lúsmýsins, sem hefur hreiðrað um sig í flestum landshlutum. Prófessor telur næsta víst að hingað berist fleiri skordýr af þessu tagi.
Enn er verið að slökkva gróðurelda við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga. Slökkvistjórinn í Grindavík segir alltaf hættu á að eldarnir nái sér á strik aftur þegar ekkert rignir og gosið heldur áfram.
Þyrluflug um Reykjavíkurflugvöll hefur þrefaldast eftir að gosið hófst.