
Silfrið
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Hallarbylting var gerð í Sósíalistaflokknum um helgina. Sanna Magdalena Mörtudóttir er hætt sem pólitískur leiðtogi flokksins en ætlar gegna embætti borgarfulltrúa áfram. Vinstri græn eru að safna sér saman eftir afhroð í síðustu alþingiskosningum og búa sig undir framboð í sveitastjórnarkosningum að ári. Framsóknarflokkurinn hefur heldur ekki náð vopnum sínum og staða Sigurðar Inga Jóhannssonar formanns mælist veik. Þá hefur Guðrúnu Hafsteinsdóttur ekki tekist að hífa fylgi Sjálfstæðisflokksins upp á fyrstu þremur mánuðum sínum sem formaður. Á sama tíma mælist fylgi ríkisstjórnarflokkanna yfir 50 prósent og tveir þeirra bæta fylgi við sig.
Við horfum yfir pólitíska landslagið með þeim Karli Héðni Kristjánssyni, ritara framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, Lilju Dögg Alfreðsdóttur, varaformanni Framsóknarflokksins, Söndru Hlíf Ocares, lögfræðingi og varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, og Stefáni Pálssyni, sagnfræðingi og varaborgarfulltrúa Vinstri grænna.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.