Silfrið

Leyft öllum aldurshópum

Fyrsta vika Trump og styrkjaklandur stjórnmálaflokka

Gestir Silfursins eru Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Jökull Sólberg Auðunsson, meðstofnandi Trip to Japan, og Hjálmar Gíslason, forstjóri Grid. Útsendingu stjórnar Rúnar Ingi Garðarsson

Það er um margt að ræða. Donald Trump hefur látið hendur standa úr ermum á fyrstu viku sinni í embætti forseta Bandaríkjanna - meðal annars heldur hann kröfu sinni um yfirráð yfir Grænlandi til streitu. Þá vekur samkrull hans við helstu tæknirisa heims athygli.

Flokkur fólksins fær ekki greidda ríkisstyrki fyrr en hann hefur breytt skráningu flokksins til rétts horfs. Kallaður hefur verið eftir að hann endurgreiði styrki sem hann hefur fengið undanfarin ár - en í ljós hefur komið að fleiri flokkar hafa fengið styrki, án þess að uppfylla skilyrði til þess.

Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins verður kjörinn í næsta mánuði. Enn sem komið er hefur Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ein gefið kost á sér.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Silfrið

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson til sín gesti til kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.

Þættir

,