• 00:02:37Getuleysi Sameinuðu þjóðanna
  • 00:27:19Kaffinördismi
  • 00:46:01Reykingar í flugvélum

Samfélagið

Getuleysi Sameinuðu þjóðanna, kaffinördismi, reykingar í flugvélum

Í dag er ár liðið frá hrottalegri árás Hamas á Ísrael - í heilt ár hafa Ísraelsmenn varpað sprengjum á Gaza og Líbanon. Sprengjum sem myrt hafa á fimmta tug þúsunda. Fyrir helgi ræddum við við Fidu Abu Libdeh, athafnakonu, sem er uppalin í Palestínu. Í hennar huga er síðastliðið ár brot af miklu lengri sögu átaka og kúgunar. Í dag ætlum við velta fyrir okkur hvað heimurinn getur gert. Hvers er alþjóðasamfélagið megnugt og hvers vegna stoppa Sameinuðu þjóðirnar þetta ekki af? Við ræðum mátt og máttleysi Sameinuðu þjóðanna við Völu Karen Viðarsdóttur, framkvæmdastjóra Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

Og síðan kíkjum við í heimsókn til ungs kaffinörds sem rekur svona hálfgert kaffinördakaffihús á Akureyri. Við pælum aðeins í kaffi: Kaffimenningu, kaffinördisma, kaffiáhrifavöldum. Og við hellum sjálfsögðu upp á kaffi líka.

Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kemur svo til okkar með upptöku úr safninu, mál sem klauf samfélagið á sínum tíma, í það minnsta reykfyllt bakherbergi þess.

Frumflutt

7. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: [email protected]

Þættir

,