Samfélagið

Skaðaminnkunarstefna, Jólaplöntur og fyrsta rafmagnsljósið

Fyrir rúmu ári ákvað heilbrigðisráðherra ráðast í heildarendurskoðun á áfengis- og vímuefnastefnu íslenskra stjórnvalda. Hluti af þeirri vinnu var skipa starfshóp sem átti semja tillögur skaðaminnkunarstefnu, þeirri fyrstu sem skrifuð hafði verið á Íslandi. Og í lok síðustu viku skilaði hópurinn umfangsmikilli lokaskýrslu sem inniheldur meðal annars greiningu á stöðu skaðaminnkunar á Íslandi og tillögur skaðaminnkunarstefnu. Í dag fáum við til okkar Helgu Sif Friðjónsdóttur, formann starfshópsins, og köfum með henni ofan í skýrsluna.

Hvernig held ég jólastjörnunni minni fallegri alla aðventuna og yfir jólin? Er minni lykt af jólaeplum í dag heldur en fyrir nokkrum áratugum? Þetta ætla garðyrkjufræðingar hjá Grasagarðinum í Reykjavík fara yfir í sérstöku fræðsluerindi í blómum prýddum garðskála garðsins á morgun kl. 17. Við fáum til okkar einn þeirra, Svavar Skúla Jónsson og ræðum tengsl plöntuheimsins við jólin, vinsælar jólaplöntur og fleira.

Og í lok þáttar kemur Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV í heimsókn með rafmagnaða upptöku úr safni RÚV.

Tónlist og stef:

GP, Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Tegund.

Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).

Sigurður Guðmundsson - Orðin mín

Borges, Lô, Nascimento, Milton - Cravo e canela.

Frumflutt

2. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: [email protected]

Þættir

,