Tengivagninn

Gyðingar á faraldsfæti, Hamraborg festival og Ljósbrot

Bókin Gyðingar á faraldsfæti eftir Joseph Roth kom út hér á landi á dögunum. En bók kom upphaflega út fyrir rétt tæplega hundrað árum. Þar bregður höfundur upp mynd af hlutskipti gyðinga í austur-evrópu á fyrstu árum tuttugusta aldarinnar, en margir þeirra yfirgáfu heimkynni sín til freista gæfunnar á fjarlægum slóðum. Þar mættu þeim hins vegar ólíkar aðstæður, tækifæri og aðlögun, en líka gettó og fordómar. Kristján Guðjónsson ræðir við þýðanda bókarinnar, Jón Bjarna Atlason í þættinum.

Hamraborg festival hefst á morgun í Kópavogi en þetta er í fjórða skipti sem hátíðin er haldin. Þar verða opnaðar sýningar, framdir gjörningar og spilaðir tónleikar - einnig er hægt skrá sig í vinnismiðjur sem fara fram yfir helgina. Bjarni Daníel leggur leið sína í Hamraborg og ræðir við Agnesi Ársælsdóttir, eina af sýningarstjórum hátíðarinnar og Hildi Elísu Jónsdóttur, listamann.

Í síðari hluta þáttar ræða Rúnar Rúnarsson og Elín Hall kvikmyndina Ljósbrot. Mynd sem gerist á einum degi og frá umfangsmiklum átakanlegum breytingum í lífi aðalpersónunnar Unu. Ljósbrot vakti mikla lukku á Cannes kvikmyndahátíðinni í sumar.

Frumflutt

28. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Tengivagninn

Tengivagninn

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er gerast í menningu í sumar.

Þættir

,