Tengivagninn

Guitar Poetry, sálin í listinni, Guðrún frystihúsastúlka, Nesbær og SÚN

Í vor kom út platan Guitar Poetry úr smiðju Mikaels Mána Ásmundssonar. Á plötunni túlkar Mikael hráar og persónulegar tilfinningar einn með gítarinn vopni. Stíll hans er ljóðrænn og er hann undir miklum áhrifum frá söngvaskáldum þó tónlistin alfarið án texta.

Nína Þorbjörg Árnadóttir sendir okkur pistilinn, en þessu sinni er hún velta fyrir sér sálinni í list á tímum gervigreindar og tilraunum tónskáldsins Davids Cope.

Guðrún Steina Gamalíelsdóttir var fædd 1937 á Stað í Grindavík og starfaði við fiskvinnslu í Grindavík frá fimmtán ára aldri, og alla tíð, eða þar til hún hætt vinna árið 2004. Guðrún lést í mars á þessu ári. Við heyrum viðtal við hana sem hljómaði í þættinum Frystihússtúlkurnar í umsjón Rósu Margrétar Húnadóttur árið 2008.

Frumflutt

6. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Tengivagninn

Tengivagninn

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er gerast í menningu í sumar.

Þættir

,