Tengivagninn

Pönnukökuboð í Öræfum, G-festival, Davidsson, Kevin Costner

Þorleifur Gaukur Davíðsson hefur komið víða við á sviði tónlistarinnar undanfarin ár, og er kannski einna þekktastur sem munnhörpuleikari Kaleo, þó einnig hafi hann spilað með fjölda íslenskra og erlendra tónlistarmanna. Fyrr á þessu ári hóf hann gefa út eigin tónlist undir nafninu Davidsson, og er fyrsta sólóplata hans væntanleg á næstu mánuðum. Við hringjum til Reykhóla, þar sem Þorleifur er staddur þessa dagana.

Katrín Helga Ólafsdóttir hafði séð fyrir séð verja helginni á færeysku tónlistarhátíðinni G-festival. Við fáum heyra söguna af því hvernig það gekk. Í kjölfarið lítum við ofan í kistu Ríkisútvarpsins og fáum heyra umfjöllun um G-festival frá árinu 2006.

Við förum svo í pönnukökukaffi til Evu Bjarnadóttur, sem er búsett í Fagurhólsmýri. Hún er ein þeirra 52 listamanna sem taka þátt í Umhverfingu nr. 5 þetta árið.

Og úr myndlistinni förum við í kvikmyndirnar.

Kolbeinn Rastrick gerir vestranum Horizon: An American Saga, skil í pistli sínum. Myndin er fyrsti af fjórum köflum og Costner ætlar sér stóra hluti.

Frumflutt

23. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Tengivagninn

Tengivagninn

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er gerast í menningu í sumar.

Þættir

,