Tengivagninn

Á leiðarenda, gunbla, The Stimming Pool

Við hittum Steinunni Gunnlaugsdóttur, myndlistakonu, fyrir framan gluggagalleríið í Bolholti 6. Þar stendur yfir sýningin Gunbla, og mun gera út sumarið. Gluggakistan er blá, og í henni standa hvítmálaðar kókflöskur í gleri. Á flöskurnar hafa orðin Nie og Wieder verið handmáluð.

Gréta Sigríður Einarsdóttir mætti á opnun sýningarinnar Á leiðarenda, sem er á listasafni Samúels í Selárdal. Þar sýna þeir Þorvaldur Jónsson og Loji Höskuldsson, en þeir eru í hópi listamanna sem taka þátt í listahátíð sem haldin var þann 19.-21. júlí í tilefni þess 140 ár eru liðin frá fæðingu Samúels Jónssonar.

Og lokum höldum við upp á Skaga, á heimildamyndahátíðina IceDocs. Bjarni Daníel ræðir við leikstjóra myndinarinnar The Stimming Pool, Steven Eastwood.

Frumflutt

25. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Tengivagninn

Tengivagninn

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er gerast í menningu í sumar.

Þættir

,