Draumar, Klassíkin okkar og sumarlok
Í þætti dagsins ætlum við að kveðja sumarið, leggjast í umfangsmikla en kaotíska draumarannsókn og svo förum við á hundavaði yfir nokkur tónlistarstef sem koma fyrir í efniskránni…
Við kynnumst Kristínu sem kallar sig Krassoff, hún er bæði tónlistarkona og dansari og er nýbúin að gefa út tvö lög.
Kíkt er ofan í kistu Ríkisútvarpsins og rifjum upp þátt Gunnars Þorra Péturssonar um Dostojevskíj frá árinu 1999, enda gætu Karamazov bræður verið hin fullkomna sumarfrís-lesning.
Ingibjörg Magnadóttir verður með okkur allan seinnihluta þáttarins, í samkvæmisleiknum er kenndur er við Proust.

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.