
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fær að meðaltali eitt eltihrellamál inn á sitt borð á fimm daga fresti. Yfir helming málanna má flokka sem heimilisofbeldi.
Félag íslenskra atvinnuflugmanna sakar Icelandair um að grafa undan kjaraviðræðum félaganna með kaupum flugfélagsins á tæplega helmingshlut Fly Play Europe.
Vandræði hafa komið upp með fjarskiptasamband og neyðarhringingar eftir útfösun 2G og 3G. Innviðaráðherra kallar eftir úttekt Fjarskiptastofu og erlendir sérfræðingar mæla farsímasambandið í haust.
Hægt hefur á hækkunum á matarverði síðustu mánuði og sumir birgjar hafa lækkað verð í sumar. verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ, segir jákvætt að matvöruverð sé ekki að keyra upp verðbólgu.
Belgískur bílasali á þrítugsaldri er óvænt orðinn prins. Hann er sonur Laurents prins, yngri bróður Filippusar Belgíukonungs, sem hefur viðurkennt hann formlega sem löglegan erfingja.

Fréttir