Kvöldfréttir útvarps

Leyft öllum aldurshópum

Minkar, barnamorð Ísraelshers, netníðingur dæmdur, halal-slátrun almenn á Íslandi

Minkarnir í Dalsbúi eru í áfalli eftir að hafa verið sleppt úr búrum í lok júlí. Allt að fimm dýr drepast enn dag hvern. Lögregla hefur engan grunaðan enn um verknaðinn.

Ísraelsher hefur viðurkennt að hafa skotið og drepið fimm ára stúlku og fjölskyldu hennar í Gazaborg fyrir tveimur árum. Hljóðupptaka þar sem stúlkan heyrist grátbiðja um hjálp fór eins og eldur í sinu um heiminn.

Bandarískur maður sem tilheyrir alþjóðlega ofbeldishópnum 764 þarf að sitja að minnsta kosti þrjátíu ár í fangelsi fyrir ítrekuð og alvarleg brot gegn ungum stúlkum á netinu, þar á meðal hér á landi.

Fjögur af fimm stærstu sláturhúsum landsins vilja fá Halal-vottun á kjötið sitt. Markaðslegar forsendur ráða för enda lítill sem enginn munur á hefðbundnum íslenskum sláturaðferðum, með eða án Halal-vottunar.

Umsjón: Þorgils Jónsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Stjórn útsendingar: HIldur Sigurbergsdóttir

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,