Kvöldfréttir útvarps

Leyft öllum aldurshópum

Eftirlitslaus hagsmunasamtök, falskt öryggi í 112, staða áhafnar Bandero og deilurnar í FIFA

Ríkisendurskoðandi segir gloppur í lagaumhverfi þýða að ekkert eftirlit sé með fjármögnun frjálsra félagasamtaka. Bæta þurfi úr þessu.

Maður sem lenti í alvarlegu slysi í Fljótsdal í vikunni segir það falskt öryggi að hafa neyðarnúmer sem ekki náist í þegar á reynir. Það tók aðstandendur hans nokkrar atlögur og tvo síma til að ná sambandi.

Allt tiltækt slökkvilið var kallað í Asparfell í Reykjavík skömmu fyrir klukkan fimm vegna reyks í stigagangi – en enginn eldur fannst.

Líklega fara fyrstu skipverjarnir af Bandero, skipi Paul Watson samtakanna, til síns heima í vikunni, en þeim var öllum vísað úr landi. Allir hafa þeir áfrýjað endurkomubanni Útlendingastofnunar og flestir halda til á skipinu.

Staða forseta FIFA heldur áfram að veikjast. UEFA segist standa við hótun sína að sniðganga mót á vegum FIFA þar til ákveðin skilyrði hafa verið uppfyllt.

Umsjón: Hugrún Hannesdóttir Diego

Tæknimaður: Mark Eldred

Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,