
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Slökkviliðsmenn í Frakklandi standa frammi fyrir fordæmalausum gróðureldum, að sögn innanríkisráðherra landsins. Spáð er 40 stiga hita í Frakklandi á morgun.
Ríflega fjögur hundruð manns greiddu atkvæði utan kjörfundar um framhald viðræðna við ESB -- á fyrsta degi utankjörfundaratkvæðagreiðslu.
Áhættumat ríkislögreglustjóra er til endurskoðunar í ljósi árásarinnar á hinsegin dögum í Berlín um helgina.
Formaður Hinsegin daga á Íslandi segir skipuleggjendur í góðu samtali við lögreglu.
Manni var bjargað úr lífsháska eftir að hann brotlenti svifvæng sunnan við Mýrdalsjökul í dag.
Lögreglan er við öllu búin fyrir verslunarmannahelgina. Miðasala á þjóðhátíð er tekin að glæðast, en á Akureyri er búist við metfjölda.
Umsjón: Alexander Kristjánsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir

Fréttir