Skaðabótakröfur á hendur Samherja, NATO fundur og Primex byrjar aftur vinnslu
Yfir þúsund manns sem störfuðu í sjávarútvegi í Namibíu krefjast skaðabóta af Samherja og staðhæfa að mútugreiðslur og spilling hafi valdið þeim tjóni.
Erfiðleikar í samskiptum Bandaríkjanna og Evrópu settu mark sitt á leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Ankara og sérfræðingar segja það sæta tíðindum að þjóðarleiðtogar þurfi að árétta samstöðu ríkjanna.
Rækju-skelvinnsla er komin á fullt á Siglufirði á ný eftir átta mánaða vinnslustopp. Stórbruni í fyrra olli tjóni upp á rúman milljarð.
Allt að hundrað þúsund manns gætu misst vinnuna hjá Volkswagen. Bílaframleiðandinn íhugar að loka fjórum verksmiðjum í Þýskalandi.
Stærsta fótboltamót landsins var sett í Kópavogi í dag. Skemmtilegast er að skora sögðu keppendur sem rætt var við.