Kvöldfréttir útvarps

Sjálfstæðismenn bæta við sig í skoðanakönnun, Rio Tinto brugðið og kókaínfíkn vaxandi vandamál

Sjálfstæðisflokkurinn er á siglingu upp á við í Þjóðarpúlsi Gallups og með einu komma þremur prósentustigum minna fylgi en Samfylkingarinnar. Samfylking tapar fylgi frá í maí.

Rio Tinto á Íslandi heitir fullri samvinnu við lögreglu vegna kókaínmálsins í Straumsvík í síðustu viku.

Neysla á kókaíni hefur aukist mikið; um fjörutíu prósent fólks milli tvítugs og fjörutíu og fimm ára sem koma á Vog eru með kókaínfíkn.

Hreyfingin Áfram Ísland - vettvangur fólks sem telur hagsmunum Íslands best borgið utan ESB - verður stofnuð á mánudag.

Sænskur dómstóll hefur dæmt tæknirisann Google til greiða því sem nemur tvöhundruð og fimmtíu milljörðum íslenskra króna fyrir samkeppnislagabrot.

HM-æði hefur gripið um sig í Noregi eftir sigur í 32-liða úrslitum á heimsmeistaramótinu í fótbolta.

Birt

1. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,