
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Staðfest er að 188 hið minnsta hafi farist og yfir fimmtán hundruð slasast í tveimur öflugum jarðskjálftum í Venesúela í gær. Hjálparsamtök telja lífskjör milljóna Venesúela versna eftir skjálftana.
Borgarstjóri segir að mannréttindi verði áfram í heiðri höfð í Reykjavík þótt mannréttindaskrifstofa og -ráð verði lögð niður. Oddviti Samfylkingar segir ákvörðunina skera, þegar mannréttindi eiga undir högg að sækja í heiminum.
Á næstu vikum verður níu erlendum föngum vísað úr landi með beitingu nýrrar, tímabundinnar, heimildar í lögum. Forstjóri Fangelsismálastofnunar segir áform uppi um fleiri brottvísanir.
Upplesnar kveðjur við jarðarfarir eru barn síns tíma að mati presta á Akureyri, sem líkja þeim við tilkynningu á þjónustuborði í Hagkaup inn í fallega athöfn.
Umsjón: Þorgils Jónsson og Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir

Fréttir