Kvöldfréttir útvarps

Leyft öllum aldurshópum

Stríð í Mið-Austurlöndum, hækkandi álverð, ferðaglaðir Íslendingar fylla öll stæði

Bandaríkjaforseti hótaði í dag að gjöreyða mikilvægum írönskum innviðum, skömmu eftir að hafa sagst bjartsýnn á friðarumleitanir. Forseti Egyptalands sárbað hann um að binda enda á átökin í Mið-Austurlöndum.

Þó heimsmarkaðsverð á áli hafi hækkað eftir að stríð braust út í Mið-Austurlöndum er alls óvíst að það skili sér í betri afkomu íslenskra álframleiðenda.

Bílastæði við Keflavíkurflugvöll eru óðum að verða uppbókuð fyrir komandi helgi þegar þúsundir Íslendinga halda út í sólina. Allt verður gert til þess að letja ferðalenga frá því óyndisúrræði að leggja í húsagötum í Reykjanesbæ.

Fjögur verkefni sem eiga að bæta almenningssamgöngur milli byggða fá 25 milljónir króna í verkefnastyrki. Meðal verkefna sem hljóta styrk eru strætisvagnaferðir milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur.

Umsjón: Þorgils Jónsson

Tælnimaður: Jón Þór Helgason

Stjórn útsendingar: Hildur Siugrbergsdóttir

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,