Tollar Trumps dæmdir ólöglegir og ofbeldi gegn félagsráðgjöfum
Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði í dag að verndartollar sem Donald Trump forseti lagði á innfluttar vörur frá fjölmörgum löndum ættu ekki rétt á sér. Trump segist hafa varaáætlun.
Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir líkur á að allir framlínustarfsmenn verði skimaðir fyrir berklum eftir að tveir starfsmenn greindust í gær. Þeir eru einkennalausir og smita ekki.
94 prósent félagsráðgjafa hafa orðið fyrir einhverskonar ofbeldi í starfi, þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar sem gerð var meðal stéttarinnar.
Reykjavíkurborg hefur náð samningi við verktaka og byrjar aftur að dreifa heitum máltíðum í mars eftir að loka þurfti framleiðslueldhúsi borgarinnar á Vitatorgi fyrr í mánuðinum vegna listeríu.