Fimm flokkar til vinstri eiga í viðræðum um myndun nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Oddviti Flokks fólksins segist ætla að ræða við baklandið áður en lengra er haldið.
Geðlæknir sem gaf skýrslu fyrir dómi í máli manns sem er grunaður um að hafa banað hjónum í Neskaupstað, metur manninn ósakhæfan. Maðurinn segir guði og djöfla hafa tekið sér bólfestu í höfði sínu.
Fjármálaráðherra segir að loðnubrestur hefði vissulega áhrif á hagvöxt en að efnahagslífið þoli það.
Sameinuðu þjóðirnar áætla að enduruppbygging á Gaza kosti rúmlega fimmtíu og þrjá milljarða dala. Vopnahléssamkomulag milli Hamas og Ísraela hefur virst standa tæpt á síðustu dögum.