22:05
PartyZone - Undir diskókúlunni
Party Zone Undir diskókúlunni : 5. júlí
PartyZone - Undir diskókúlunni

Það eiga allir einhverjar góðar og jafnvel trylltar minningar af dansgólfinu þar sem diskókúlan snýst. Við spilum dansmelli áratuganna og kyndum upp í minningum hlustenda. Við rifjum upp skemmtistaði, ákveðin ár eða gullaldartímabil þar sem dansgólfin voru troðfull af gleði og látum.

Þátturinn geymir dagskrárliði eins og Diskóþrennuna, Dansárið er, Skemmtistað fortíðar og íslenska lagið. Gestur þáttarins fær nafnbótina Veislustjórinn og rifjar upp trylling á dansgólfinu og velur nokkur lög. Að lokum er kokteill kvöldsins hristur fyrir hlustendur, nokkurra laga syrpa með lögum úr ýmsum áttum.

Umsjón: Kristján Helgi Stefánsson og Helgi Már Bjarnason

Diskókúla PartyZone snýst áfram nú í júlí, þátturinn hefst að vanda á diskóþrennunni og förum svo út í frímínútur þar sem spilaðar eru dansbombur fortíðar. Við kíkjum á hinn goðsagnakennda skemmtistað Rósenberg í smá stund ásamt því að skoða dansárið 2008 með því að spila þrjú vel valin lög frá því herrans dansári. Gestur þáttarins er engin önnur en DJ Sóley sem mætir með fjögur lög í farteskinu sem hún tengir við trylling á dansgólfinu, líklega frá stöðum sem hún spilaði á eða dansaði á.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,