12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 5. júlí 2024
Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Keir Starmer er tekinn við stjórnartaumum í Bretlandi. Rishi Sunak sagði af sér í morgun og ætlar að hætta sem leiðtogi Íhaldsflokksins eftir afhroð í þingkosningunum í gær.

Fyrrverandi starfsmenn Skagans 3X hafa þrátt fyrir gjaldþrot þurft að hlaupa til og bjarga málum hjá útgerðum sem nota mikinn og flókinn búnað frá fyrirtækinu. Óvissa er um varahluti.

Þingmenn Norðvesturkjördæmis hafa fulla trú á að hægt sé að efla atvinnulíf á Akranesi á ný. Gjaldþrotið sé mikið reiðarslag og nú þurfi samstillt átak um atvinnuuppbyggingu.

Ökumenn, sem njóta bifreiðahlunninda og aka á vistvænum bílum, þurfa að greiða lægri hlunnindaskatt samkvæmt reglum sem taka gildi síðar í mánuðinum.

Danska lögreglan hefur ákært Nordea, einn stærsta banka Norðurlandanna, í umfangsmiklu peningaþvættismáli. Talið er að tugir milljarða danskra króna hafi verið þvættaðir í gegnum bankann.

Svikarar þykjast bjóða upp á streymi frá Landsmóti hestamanna á samfélagsmiðlum. Forsvarsmenn mótsins biðja landsmenn að vara sig á þeim.

Kúluvarparinn Erna Sóley Gunnarsdóttir hlaut í dag keppnisrétt á Ólympíuleikunum í París. Hún er fimmti Íslendingurinn til að fá staðfestan þátttökurétt á leikunum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,