18:00
Kvöldfréttir
Kona fjármálaráðherra, land rís enn, bíræfinn gámaþjófur
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Ríkisstjórn Keirs Starmers, leiðtoga breska Verkamannaflokksins, var kynnt í dag eftir sigur í þingkosningunum í gær. Rachel Reeves er fjármálaráðherra, fyrst kvenna í Bretlandi.

Landris heldur áfram í Svartsengi. Veðurstofan telur að magn kviku sem hefur streymt þangað frá því um miðjan janúar, sé nokkuð stöðugt.

Bíræfinn þjófur blekkti flutningafyrirtæki til að flytja gám fullan af verðmætum á afvikinn stað. Lögreglan segir þetta eitt stærsta þjófnaðarmál þessa árs.

Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir Brúneggjamálið. Bæði Brúnegg og MAST áfrýjuðu niðurstöðu Landsréttar vegna Kastljóssumfjöllunar.

Lítið er í lónum Landsvirkjunar og vatnsstaða með allra lægsta móti og óvíst að lónin fyllist fyrir veturinn. Fulltrúi Landsvirkjunar segir vonast til að jökulbráð hefjist fljótlega og að rigni hraustlega í haust.

Er aðgengilegt til 05. júlí 2025.
Lengd: 10 mín.
,