18:10
Spegillinn
Hver er Keir Starmer og hvaða verkefni bíða?
Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Hvaða verkefni bíða hins nýja forsætisráðherra Bretlands og nýrrar ríkisstjórnar hans?

Halla Gunnarsdóttir hefur lengi fylgst vel með breskum stjórnmálum og starfaði um tíma innan þeirra. Hún bendir á að auka þurfi hagvöxt í landinu og lagfæra mikilvæga innviði, Bretland sé að mörgu leyti illa statt.

Ævar Örn Jósepsson fjallar um fortíð Keirs Starmers, lögfræðings sem var öflugur verjandi og baráttumaður í mannréttindum sem varð grjótharður saksóknari. Hann þykir ekki sérlega litríkur og sjarmerandi, en á móti eldklár og rökfastur.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,