22:10
Mannlegi þátturinn
Egill Eðvarðsson föstudagsgestur og kvikmyndamatur
Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

(Aftur í kvöld)

Egill Eðvarðsson myndlistamaður og leikstjóri er föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Egill útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1971 og árið 2019 fékk hann heiðursverðlaun Eddunnar en hann hefur starfað við ís­lenska sjón­varps- og kvik­mynda­gerð í hart­nær 50 ár lengst af við dag­skrár­gerð og upp­töku­stjórn hjá RÚV. Við fórum með Agli aftur í tímann á æskuslóðirnar á Akureyri, á ljósmyndastofu föður hans og fleira og fórum svo á handahlaupum í gegnum lífið til nútímans, en Í dag sinnir Egill myndlistinni sinni og hann sagði okkur frá hvað annað hann hefur verið að bardúsa þessa dagana. Hann er síður en svo sestur í helgan stein og hann hefur sterkar skoðanir á því kerfi sem er við lýði þar sem fólk er nánast sett út í kuldann þegar það er komið á vissan aldur.

Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað og í dag og við töluðum um áhrif kvikmynda og sjónvarpsefnis þegar kemur að mat. Matur spilar stórt hlutverk í mörgum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og oft er hann svo girnilegur að áður en við vitum að erum við farin að elda það sama.

Tónlist í þættinum:

Reiknaðu með mér / Björn Jörundur og Ragnheiður Gröndal (Björn Jörundur Friðbjörnsson)

My Little Grass Shack / Leon Redbone og Ringo Starr (Bill Cogswell, Johnny Noble & Tommy Harrison)

Vetrarsól / Björgvin Halldórsson (Gunnar Þórðarson og Ólafur Haukur Símonarson)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
e
Endurflutt.
,