Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Íslenskt ball

Slegið er upp íslensku balli með hljómsveitum Ásgeirs Sverrissonar og Ingimars Eydal. Hljómsveit Ásgeirs leikur dans- og dægurlög frá upphafi áttunda áratugarins með söngvurunum Siggu Maggý og Gunnari Páli. Síðari hluti þáttarins er helgaður hljómsveit Ingimars Eydal og söngvurum á borð við Þorvald Halldórsson, Helenu Eyjólfsdóttur og Vilhjálm Vilhjálmsson.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá árið 2006

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,