Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Sigfús Halldórsson, seinni þáttur

Seinni þátturinn um Sigfús Halldórsson fjallar um fjölbreyttan feril hans sem tónskálds, söngvara, myndlistarmanns og leikhúsmanns. Hlustað er á lög í flutningi Ellyar Vilhjálms, Erlu Þorsteinsdóttur, Vilhjálms Vilhjálmssonar og Kristins Hallssonar. Einnig er sagt frá tilurð laga á borð við „Tondeleyo“ og „Vegir liggja til allra átta“ og sagt frá samstarfi Sigfúsar við íslensk ljóðskáld og tengslum hans við leikhús og myndlist.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá árið 2008.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,