Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Sjómannalög

Í þættinum eru sjómannalög frá Íslandi og Norðurlöndunum í aðalhlutverki, þar sem sungið er um sjómennsku, siglingar, heimþrá og ástir þeirra sem bíða í landi. Meðal flytjenda eru Tónasystur, Helena Eyjólfsdóttir, Alfreð Clausen, Ragnar Bjarnason, Sigurður Ólafsson og Berti Möller. Einnig er fjallað um íslensk sjómanna- og síldarlög og samstarf Oddgeirs Kristjánssonar og Ása í Bæ.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá árið 2006

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,