Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Ragnar Bjarnason

Í þættinum er sjónum beint að Ragnari Bjarnasyni og tónlist hans frá áttunda áratugnum. Hlustað er á hljómplötu hans frá 1971, þar sem kántrítónlist er áberandi, auk upptaka úr safni Ríkisútvarpsins frá árunum 1971 og 1977. Einnig heyrist Ragnar syngja með Þuríði Sigurðardóttur og hljómsveit sinni vinsæl erlend dægurlög frá þessum árum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá árið 2007.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,