Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Danslagakeppni 1939

Í þættinum er rifjuð upp fyrsta danslagakeppni sinnar tegundar á Íslandi, sem haldin var á Hótel Íslandi árið 1939. Hlustað er á tíu efstu lög keppninnar, meðal annars eftir Henna Rasmus, Sigfús Halldórsson, Bjarna Böðvarsson og Oliver Guðmundsson. Þar á meðal eru lögin „Dagný“ og „Við eigum samleið“ eftir Sigfús Halldórsson við ljóð Tómasar Guðmundssonar. Upptökurnar voru gerðar fyrir Ríkisútvarpið árið 1964 með hljómsveit Svavars Gests og söngvurunum Önnu Vilhjálms, Berta Möller og Guðmundi Jónssyni.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 11. júní 2006.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,