Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Sigfús Halldórsson, fyrri þáttur.

Fjallað um Sigfús Halldórsson, um ævi hans og feril sem tónskálds, söngvara og listamanns. Spiluð lög í flutningi Alfreðs Clausen, Ellyar Vilhjálms, Ragnars Bjarnasonar og Sigurðar Ólafssonar. Sérstaklega er fjallað um samstarf Sigfúsar og Tómasar Guðmundssonar, fyrstu tónsmíðar hans og lögin „Við eigum samleið“ og „Dagný“, sem komu honum á kortið sem tónskáldi árið 1939.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá árið 2008

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,