Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

KK-sextettinn fyrstu árin

Fyrsti þátturinn um KK-sextettinn fjallar um sögu hljómsveitarinnar frá stofnun hennar árið 1947 og þróun hennar fram eftir sjötta áratugnum. Sagt er frá hljómsveitarstjóranum Kristjáni Kristjánssyni, hljóðfæraleikurum sveitarinnar og söngvurum á borð við Sigrúnu Jónsdóttur, Hauk Morthens, Ingibjörgu Smitt og Ragnar Bjarnason. Einnig er fjallað um djassáhrifin í tónlist sveitarinnar, tónleikaferð hennar til Þýskalands og þær breytingar sem urðu með innreið rokksins.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 12. febrúar 2009.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,