Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Sigurður Ólafsson söngvari

Í þættinum er fjallað um söngvarann Sigurð Ólafsson og fjölbreyttan söngferil hans. Flutt eru íslensk dægur- og danslög í flutningi hans með hljómsveitum Jans Morávek, Carls Billich, Jónatans Ólafssonar og fleiri. Sérstök áhersla er lögð á tónlist Freymóðs Jóhannssonar og Svavars Benediktssonar, auk þess sem sagt er frá ævi Sigurðar.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 16. október 2008.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,