Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Hljómsveitir Ásgeirs Sverrissonar og Jóhannesar Eggertssonar

Í þættinum er leikin íslensk og dönsk dans- og dægurtónlist frá miðri 20. öld. Hlustað er á hljómsveitir Ásgeirs Sverrissonar og Jóhannesar Eggertssonar spila polka, valsa og sjómannalög, auk danskra sjómanna- og dægurlaga. Meðal söngvara eru Sigga Maggý, Grétar Guðmundsson, Gustav Winckler og Elsa Sigfúss.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá árið 2005.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,