Litla flugan

Leyft öllum aldurshópum

Alfreð Clausen og Ingibjörg Þorbergs

Í þættinum er rifjuð upp íslensk dægurtónlist frá miðri 20. öld með áherslu á Alfreð Clausen og Ingibjörgu Þorbergs. Hlustað er á upptökur með þeim og öðrum söngvurum, meðal annars Sigrúnu Jónsdóttur og Soffíu Karlsdóttur. Sérstaklega er fjallað um lög Ingibjargar, feril hennar sem söngkonu og tónskálds og upptökur sem hún gerði með Sinfóníuhljómsveit bandaríska flughersins í Washington árið 1956.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þátturinn var fyrst á dagskrá árið 2006.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Litla flugan

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,