ok

Grindavík

Grindavík: fyrstu dagarnir eftir rýmingu - Þriðji þáttur

Sex dagar voru liðnir frá rýmingu og enn voru taldar miklar líkur á eldgosi. Umræðan í samfélaginu fer í auknum mæli að beinast að sprungunum í Grindavík, um sambærilegar jarðhræringar fyrr á tímum og vangaveltur um hvert framhaldið verði. Þarf að endurskoða byggingaráform framtíðarinnar?

Gunnar Tómasson, framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Þorbjarnar í Grindavík, er fæddur og uppalinn í bænum. Hann þekkir vel til sprungnanna enda hafa þær verið leiksvæði grindvískra barna í gegnum áratugi. Í þessum þætti segir Gunnar frá æskuheimili sínu sem eyðilagðist í skjálftunum og segir einnig frá sögu Grindavíkur.

Viðtölin í þessari þáttaröð voru tekin yfir vikutímabil, frá þriðjudeginum 14. nóvember til þriðjudagsins 21. nóvember, og standa sem vitnisburður um þann tíma sem Grindavík var á neyðarstigi. Þegar íbúar fengu afmarkaðan tíma í fylgd björgunarsveita til að bjarga verðmætum af heimilum sínum en voru á sama tíma að reyna ná áttum á nýjum stöðum, samfélagið dreift um allt land.

Umsjón og dagskrárgerð: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Frumflutt

30. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Grindavík

Grindavík

Föstudagurinn 10. nóvember 2023 var upphafið að nýjum kafla í sögu Grindavíkur. Íbúar bæjarins neyddust til að yfirgefa heimili sín í miklum flýti og við tók gríðarleg óvissa um framtíðina. Í þessum þáttum fylgjumst við með lífi Grindvíkinga þróast í takt við sífelldar breytingar.

Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Þættir

,