Felix kynnti nýtt upphafslag þáttarins úr ranni Lieutenant Pigeon en það heitir Mouldy Old Dough og er frá 1972.
Helga Margrét kórstjóri og tónlistarkona var svo gestur Felix í fimmunni og sagði af fimm kennurum sem höfðu áhrif á líf hennar. Sagan hófst á Ísafirði þar sem Helga Margrét ólst upp og barst svo til Reykjavíkur í Listaháskóla Íslands og svo til Danmerkur í mastersnám við Konunglega listaháskólann. Í millitíðinni eignaðist hún barn þá enn í menntaskóla og villtist svo ein um höfuðborgina og sótti hjálp í símaver 118.
Í síðari hluta þáttarins var hamingjan þema þáttarins og lög í þeim anda leikin
tónlist:
Lieutenant Pigeon - Mouldy Old Dough
Lónlí blú bojs - Hamingjan
Úkulellur - Píkuprump
Jóhanna Guðrún - Kvöldsigling
The Real Group - A Minute On Your Lips
Popparoft - Hamingja/Happiness
Hipsumhaps - Á hnjánum
Ásgeir Trausti - Sumargestur
Katla Yamagata og Jói Pé - Hjáleið
Rosa Linn - Snap
Rúnar Júlíusson - Hamingjulagið
REM - Shiny Happy People
Beatles - Hamminess Is A Warm Gun
Supertramp - Locical Song
Paolo Nutini - New Shoes
Paolo Conte - Via con me
Bobby McFerrin - Don't Worry Be Happy
Jónas Sig - Hamingjan er hér