Aðalgestur Fram og til baka þennan morguninn var knattspyrnumaðurinn Birkir Már Sævarsson. Birkir spilar nú sitt síðasta tímabil með Val í Reykjavík og verður fertugur á árinu. Birkir vann sinn fyrsta titil með Val árið 2007, lék með landsliðinu til ársins 2021 þegar hann ákvað að hleypa sér yngri mönnum að sinni stöðu en hann er bakvörður.
Í tilefni þess að Evrópumót karla í knattspyrnu hefst í komandi viku í Þýskalandi þá bauð Birkir upp á boltafimmu þar sem hann rifjaði upp fimm eftirminnilega leiki sem hann hefur tekið þátt í, inn á vellinum aðallega en þó aðeins sem áhorfandi í einum þeirra. Þar heyrðum við góðar sögur frá Hlíðarenda, Hammarby í Svíþjóð, HM í Frakklandi 1998, HM í Rússlandi 2018 og EM í Frakklandi árið 2016 þegar Íslendingar unnu m.a. frækinn sigur á Englendingum.
Og sökum þess að þátturinn hófst með boltalátum þá hélt þáttastjórnandi boltanum gangandi með fótboltalögum. Hér er lagalisti þáttarins:
Frá 08-09:
Lón - Hours.
Daði Freyr - Whole Again
Kiriyama Family - Disaster
Frá 09-10:
Gerry & The Pacemakers - You'll Never Walk Alone.
Bogomil Font og bakverðirnir - Skagamenn skora mörkin
DODO GAD - Re-sepp-ten (Vi er rode Vi er hvide)
The Lightning Seeds, David Baddiel, Frank Skinner - 3 Lions
Friðrik Dór - Samvinnersamasemvinna
The White Stripes - Seven Nation Army
Bubbi Morthens - Við erum KR
Dario G. - Carnaval
Shakira - Waka Waka
MGMT - Time To Pretend
GALA - Freed from desire