Flugur

Lög við kvæði Rúnars Hafdals Halldórssonar

Rúnar Hafdal Halldórsson lést 23 ára gamall af slysförum árið 1971 og skildi eftir sig nokkur kvæði. Þrjú þeirra höfðu verið birt á prenti í tímaritinu Eimreiðinni og fleiri ljóð í skólablaði Menntaskólans á Laugarvatni. Hörður Torfason samdi lög við þrjú þessara kvæða sem komu út á fyrstu stóru plötu hans. Ári eftir andlát Rúnars Hafdals kom út bókin Sólris; ljóð og laust mál. Það hafa verið samin lög við nokkur kvæða hans. Hörður bætti við einu lagi sem kom á annarri plötu hans og Karl Sighvatsson samdi lag við hluta ljóðsins Brot úr sögu kapítalismans í Víetnam, sem heitir Hugleiðing. Þar auki er Guðmundur Hermannsson höfundur fjögurra laga sem komu út á sólóplötu hans sem fékk nafnið Í tilefni dagsins.

Birt

31. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Flugur

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Þættir

,