Ljóð og lög af ýmsum toga
Leikin eru lög sem hafa verið samin við ljóð ýmissa skálda en líka eitt lag þar sem textinn hefur verið íslenskaður. Fyrri hluta þáttarins hljóma lög við ljóð Jakobs Jóhannessonar…
Hljómsveitin Police vakti verulega athygli á sínum tíma, en þar lögðu þremenningarnir Sting, Stewart Copeland og Andy Sumner saman krafta sína á eftirminnilegan hátt. Rifjuð eru upp nokkur lög sem þessir þremenningar hljóðrituðu saman þar sem þeir blanda saman áhrifum frá reggae tónlist og rokki. Lögin sem hljóma í þættinum eru Roxanne, I Can't Stand Losing You, So Lonely, Walking On The Moon, Bring On The Night, The Bed's Too Big Without You, Don't Stand So Close To Me, Canary In A Coalmine, Man In A Suitcase og One World (Not Three). Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.