07:03
Morgunvaktin
Málefni barna og samfélagsins, Evrópumál og saga kommúnista á Íslandi
Morgunvaktin

Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Við fjölluðum áfram um samfélagið sem við eigum með okkur hér í landinu, í framhaldi af spjalli okkar við . Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, ræddi við okkur hvernig samfélagið blasir við henni,

Við fengum fréttir frá Evrópu þegar Björn Malmquist fréttamaður í Brussel var með okkur eftir morgunfréttir klukkan átta. Meðal þess sem Björn fór yfir með okkur eru deilur Norðmanna við Evrópusambandið um orkumál, óveður sem gengið hefur yfir hluta Evrópu síðustu daga og ný skýrsla um samkeppnishæfni álfunnar.

Út er komin saga kommúnista- og sósíalistahreyfingarinnar sem starfaði hér í hálfa öld, frá 1918 til 1968. Nú blakta rauðir fánar, nefnist hún. Þetta er átakasaga, þeir rauðu tókust á við valdið og pólitíska andstæðinga en ekki voru síður átök innan raða hreyfingarinnar. Skafti Ingimarsson sagfræðingur er höfundur verksins, hann sagði frá.

Tónlist:

Kór Langholtskirkju - Ó, blessuð vertu sumarsól.

Kór Langholtskirkju - Krummi krunkar úti.

Ekdahl, Lisa - På jakt efter solen.

Ríó tríó - Eina nótt.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,