18:00
Kvöldfréttir
Mál Yasans og morð í Krýsuvík
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Karlmaður á fimmtugsaldri sem er grunaður um að hafa banað tíu ára dóttur sinni var í dag úrskurðaður í átta daga gæsluvarðhald.

Dómsmálaráðherra segir ákvörðun sína um að fresta brottvísun Yasan Tamimi ekki til marks um vantraust á þær stofnanir sem að henni komu.

Árið í ár stefnir í að verða það heitasta í sögunni. Hitinn í ágúst á heimsvísu var hátt í tveimur gráðum hærri en fyrir iðnbyltinguna.

Forstöðumaður vinnsluáætlana Landsvirkjunar segir að nú hefði komið sér vel ef vindmyllur við Búrfell væru komnar í gagnið. Hauststaðan í Þórisvatni sem geymir forða fyrir sjö vatnsflsvirkjarni hafi aldrei verið verri á þessum árstíma.

Framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur fagnar áformum um að líkhús fái heimild til að rukka fyrir líkgeymslu.

Óljóst er hvað verður um kvennaathvarfið á Akureyri þegar það missir núverandi aðsetur um áramót. Bærinn ætlar ekki að útvega nýtt húsnæði.

Er aðgengilegt til 16. september 2025.
Lengd: 10 mín.
,