Kastljós

Hnífaárás í miðborginni

Ung stúlka særðist lífshættulega þegar unglingsstrákur réðst á hana með hníf í Miðborginni á menningarnótt. Tveir aðrir særðust í árásinni. Vopnaburður ungmenna er færast í aukana sem og tíðni alvarlegra ofbeldisbrota. Við ræðum við Unnar Þór Bjarnason, samfélagslöggu svonefnda, sem fer í skóla og reynir efla tengsl lögreglunnar og ungmenna.

Alexandra Briem borgarfulltrúi og Jenný Ingudóttir, lýðheilsufræðingur og foreldri koma líka í myndver og ræða þróunina, hlutverk foreldra og öryggi í miðborginni.

Frumsýnt

26. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Kastljós

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,