Samfélagið

Vistkjöt, hermisetur, málfar og vísindaspjall

Hvað er vistkjöt og hvernig tengist íslenskt líftæknifyrirtæki framleiðslu á slíku kjöti? Við komumst því í þætti dagsins þegar Berglind Rán Ólafsdóttir forstýra ORF líftækni kemur til okkar. Vel þess virði sperra eyrun og hlusta á það.

Við heimsækjum svo færni- og hermisetur í Eirbergi, þar sem kennsla fer fram í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði. Við skoðum aðstöðuna hátt og lágt, fáum taka púlsinn á sýndarsjúklingi og forvitnast um það sem er framundan. Og það er margt.

Við fáum málfarsmínútu frá Önnu Sigríði Þráinsdóttur málfarsráðunauti og Edda Olgudóttir kemur til okkar í vísindaspjall.

Frumflutt

27. sept. 2023

Aðgengilegt til

27. sept. 2024
Samfélagið

Samfélagið

Með Kvosarskipulaginu í miðborg Reykjavíkur breyttist ýmislegt, allt í einu voru komin borð og stólar utandyra við veitingastaði, og gestir gátu notið sólar og útiveru. Laugavegur er mestu göngugata og veitingastaðir hafa sett húsgögn útfyrir. Lögreglan hefur undanfarna viku verið reka gesti inn, vegna þess margir staðanna hafa ekki tilskilinn leyfi. Hvimleitt og erfitt því rekstur margra staðanna er á nippinu eftir covid. Aðalgeir Ásvaldsson er framkvæmdastjóri samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði

Samfélagið heldur áfram fjalla um máva í Garðabænum - Arnór Þ. Sigfússon fuglafræðingur spjallar við Arnhildi um Sílamáfinn sem er um margt forvitnilegur, samlíf manna og máfa, hvers konar ráð duga helst gegn ágengum máfum og hvernig máfurinn var hrakinn af Keflavíkurflugvelli á sínum tíma.

Við ætlum einnig kynna okkur sjálfbær fjármál og hvernig þau passa inn í myndina um sjálfbæra framtíð og sjálfbær samfélög. Öll þessi sjálfbærni kostar jú. Bjarni Herrera, sérfræðingur í sjálfbærni og sjálfbærum fjármálum, sem gaf nýverið út bók um þessi efnistök.

Þættir

,