Rokkland

Spacestation - Dúkkulísurnar Erla og Gréta - Mike Stern og Gullnöglin

Í Rokklandi dagsins verður farið víða - það er klisja en það er satt.

Við ætlum hlusta á gítarrokk og barrokk-popp og ástarsöngva og jazz og allt mögulegt og allt er þetta músík og allt er þetta góð músík.

Ég hitti tvo af ungu mönnunum í rokkhljómsveitinni Spacestation um daginn. Spacestation er skemmtileg hljómsveit sem minnir soldið á Strokes og Velvet Underground

og Oasis jafnvel? Spacestation er spila á Iceland Airwaves og þeir eru með stóra drauma þessi ungu menn.

Dúkkulísurnar frá Egilstöðum hafa verið starfandi í meira en 40 ár. Þær eru ekkert alltaf en hljómsveitin er starfandi allar stelpurnar vinkonur og eru meira segja fleiri í dag en í upphafi. Tvær þeirra Erla Ragnarsdottir söngkona og Gréta gítarleikari voru senda frá sér plötu bara tvær Lífið er ljóðið okkar. Ég hitti þær og spjallaði við þær á föstudaginn þegar þær héldu lítið útgáfuboð á nýjum litlum bar og veitingahúsi og hóteli við Ránargötu.

Og svo er það gítarinn Gítarveisla Bjössa Thor - 20 ára afmæl fór fram fimmtudagskvöldið í Bæjarbíó í Hafnarfirði. Þar var margt um manninn smekkuppselt og tveir erlendir gestir; Robben Ford og Mike Stern sem spilaði með Blood Sweat and tears í upphafi ferils síns spilaði svo með Jaco Pastorius og Miles Davis og hann er handhafi Gullnaglarinnar í ár. Önnur gítarhetja Þráinn Árni Baldvinsson úr Skálmöld spjallaði við Mike Stern fyrir Rokkland hann veit hvernig á spyrja gítarleikara spjörunum úr. Og þetta er ekki allt það er meira!

Frumflutt

29. sept. 2024

Aðgengilegt til

1. okt. 2025
Rokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í næsta haust eru 30 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,